flugfréttir

Flugvélaleigan BOC hættir við þrjátíu MAX-þotur

1. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 19:10

Boeing 737 MAX þota í litum BOC Aviation

Flugvélaleigan BOC Aviation í Singapore tilkynnti í dag að fyrirtækið sé búið að hætta við pöntun í 30 Boeing 737 MAX þotur.

Þetta er önnur stóra afbókunin sem Boeing fær inn á borð til sín á einum sólarhring en í gær tilkynnti norska flugfélagið Norwegian að það hefði hætt við allar frekari Boeing 737 MAX þotur en félagið átti von á 92 þotum til viðbótar.

Robert Martin, framkvæmdarstjóri BOC Aviation, sagði í morgun að fyrirtækið hefði tekið ákvörðun um að hætta við þrjátíu 737 MAX þotur þrátt fyrir að fyrirtækið hafi fulla trú á MAX-vélunum.

Sérfræðingar í flugmálum segja að sitthvorar forsendurnar séu fyrir afpöntun Norwegian og BOC Aviation en norska flugfélagið er sagt hafa ákveðið að hætta við 737 MAX vegna kyrrsetningarinnar á meðan BOC Aviation er að huga að breyttum aðstæðum og samdrætti í eftirspurn flugfélaganna eftir nýjum þotum.

Til greina kom að fresta pöntuninni á Boeing 737 MAX þotunum fyrir BOC Aviation en fyrirtækið ákvað frekar að hætta alveg við pöntunina þar sem lausafé fyrirtækisins er ekki ótakmarkað.

BOC Aviation hefur fengið sex Boeing 737 MAX þotur afhentar og átti félagið eftir að fá 87 þotur og er fyrirtækið því að hætta við um þriðjung af öllum þeim 737 MAX þotum sem fyrirtækið pantaði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga