flugfréttir
ATR mun framleiða helmingi færri flugvélar
- Um 200 starfsmönnum verður sagt upp
Frá verksmiðjunum þar sem ATR flugvélarnar eru framleiddar
Fransk-ítalski flugvélaframleiðandinn ATR ætlar að draga saman smíði nýrra flugvéla um helming auk þess sem yfir 200 starfsmönnum verður sagt upp á næstunni.
Niðurskurðaraðgerðirnar eru tilkomnar vegna COVID-19 heimsfaraldursins sem hefur
orðið til þess að eftirspurn eftir nýjum farþegaflugvélum hefur dregist saman töluvert.
Í yfirlýsingu frá ATR sem gefin var út í dag kemur fram að framleiðandinn afhenti 67 nýjar
flugvélar árið 2019 en í ár er talið að um 30 til 35 flugvélar verði afhentar sem er næstum því
helmingi færri flugvélar.
Stefano Bortoli, framvæmdarstjóri ATR, segir að þetta sé ein mesta krísa sem að ATR hefur
nokkurn tímann gengið í gegnum og hafi það verið mjög erfið ákvörðun að þurfa að grípa
til þessara aðgerða.
Bortoli tekur samt fram að sá markaður sem ATR framleiðir flugvélar fyrir eigi þó eftir að ná
sér frekar fljótt á strik samanborið við þann markað sem snýr að langflugi en talið
er að eftirspurnin eigi eftir að koma fyrst til baka meðal farþega sem fljúga stuttar flugleiðir
sem oftast eru farnar með skrúfuþotum á borð við þær sem ATR framleiðir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.