flugfréttir

Air Namibía svipt leyfi til þess að fljúga farþegaflug

9. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:00

Flugvélar namibíska flugfélagsins Air Namibia á flugvellinum í borginni Windhoek

Ríkisstjórn Namibíu hefur svipt flugfélaginu Air Namibia leyfi til þess að fljúga áætunarflug og leiguflug með farþega þar sem að félagið hefur ekki náð að afla nægilegs fjármagns til þess að sína fram á að félagið geti haldið rekstrinum áfram.

Samgönguráðuneyti Namibíu ákvað því að svipta félaginu leyfi til þess að fljúga áætlunarflug með farþega vegna óvissu með fjárhagsstöðu félagins sem hefði annars geta bitnað á flugöryggi og þjónustu við farþega.

„Flugfélag þarf að uppfylla lágmarksskilyrði er snýr að fjárhagsstöðu til þess að tryggja öryggi og áreiðanlega þjónustu og eftir að hafa tekið alla þætti málsins með í reikninginn þá var það niðurstaðan að svipta félaginu leyfi til þess að fljúga áætlunarflug, leiguflug og sérstakar flugferðir á borð við björgunarflug“, segir í tilkynningu frá stjórnvöldum í landinu.

Air Namibía hefur frest fram til 22. júlí til þess að koma með gögn sem sanna að félagið sé með nægt fjármagn til þess að geta haldið rekstrinum áfram og uppfylla kröfur sem snúa að flugþjónustusáttmála.

Air Namibía þarf að minnsta kosti 65 milljarða króna til þess að geta haldið áfram rekstri en félagið hefur aðeins fengið um 1/10 af þeirri upphæð sem var opinber aðstoð frá stjórnvöldum í Namibíu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga