flugfréttir

Icelandair og airBaltic í samstarf

13. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 18:35

Með samstarfinu geta farþegar hjá báðum flugfélögum bókað flug áfram til áfangastaða í leiðarkerfi félaganna beggja

Icelandair og lettneska flugfélagið airBaltic hafa hafið samstarf með undirritun samstarfssamning um sameiginlega útgáfu á farmiðum.

Með samstarfinu geta farþegar hjá báðum flugfélögum bókað flug áfram til áfangastaða í leiðarkerfi félaganna beggja með einföldum hætti á einni bókun.

Geta farþegar með airBaltic því fengið auðveldara aðgengi að flugi til Íslands og áfram til Norður-Ameríku á meðan Íslendingar geta farið á einni bókun til Lettlands og þaðan áfram til áfangastaða airBaltic um Austur-Evrópu og Eistrasaltsríkin.

„Okkur er það mikil ánægja að bæta Icelanair við í hóp samstarfsaðila meðal þeirra flugfélaga sem deila leiðarkerfinu með okkur og hlakkar okkur til samstarfsins með Icelandair og að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á fleiri tækifæri“, segir Martin Gauss, framkvæmdarstjóri airBaltic.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir að með þessu geti Íslendingar fengið fleiri valmöguleika er kemur að því að ferðast um Evrópu og þá sérstaklega um austurhluta álfunnar á meðan farþegar airBaltic geta fengið að upplifa Ísland og ferðast áfram til Norður-Ameríku með Icelandair.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga