flugfréttir
Blásið til hátíðar vegna opnunar á Brandenburg-flugvellinum
- Boðið upp á ýmsa viðburði þegar BER opnar 31. október
Airbus-þotur frá easyJet í geymslu á Brandenburg-flugvellinum í Berlín vegna COVID-19 heimsfaraldursins
Stjórn Brandenburg-flugvallarins í Berlín hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem segir að fyrirhuguð er mikil opnunarhátíð vegna opnun flugvallarins með viðburðum sem munu standa yfir frá 25. október fram til 8. nóvember í haust en flugvöllurinn sjálfur opnar dyrnar fyrir farþegum þann 31. október.
Starfsemi annarra flugvalla í Berlín mun færast yfir á nýja Brandenburg-flugvöllinn
og verður því flogið frá honum til yfir 150 áfangastaða sem er samkvæmt
áætlun sem fyrst fór á teikniborðið á tíunda áratug síðustu aldar.
Framkvæmdir við Brandenburg-flugvöllinn hófust árið 2006 og stóð upphaflega
til að flugvöllurinn myndi opna árið 2011 en mörgum sinnum var opnun vallarins frestað
og mun hann loksins opna núna í haust,
9 árum á eftir áætlun.
Frá Brandenburg-flugvellinum í Berlín
Stjórn Brandenburg-flugvallarins lýsti því yfir í byrjun mánaðarins að ekkert sé lengur
því til fyrirstöðu að opna flugvöllinn í október og séu öll tilskilin leyfi í höfn og búið
sé að lagfæra alla þá galla sem komu í ljós fyrir nokkrum árum síðan sem varð
til þess að opnun vallarins var frestað.
Eftir að Brandenburg-flugvöllurinn verður tekinn í notkun mun starfsemi
Tegel-flugvallrins leggjast af og þá mun flugstöðin á Schönefeld-flugvellinum
verða Terminal 5 á Brandenburg-flugvellinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.