flugfréttir

Fyrsta PC-24 sjúkraþotan fyrir Svíþjóð flýgur sitt fyrsta flug

26. júlí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 16:01

Fyrsta Pilatus PC-24 sjúkraþotan í fyrsta tilraunarfluginu fyrir afhendingu

Fyrsta Pilatus PC-24 sjúkraþotan fyrir sænsku sjúkraflugþjónustuna KSA (Kommunalförbundet Svenskt Ambulansflyg) flaug fyrir helgi sitt fyrsta flug frá verksmiðjunum í Sviss áður en þotan verður afhent til Svíþjóðar.

Minna en ár er síðan að KSA lagði inn pöntun til Pilatus í ágúst í fyrra með samningi um kaup á sex sjúkraþotum af þessari gerð og fór fyrsta eintakið sem smíðað hefur verið fyrir KSA í loftið frá Buochs-flugvellinum í Sviss þann 22. ágúst sl.

Með þotunum, sem nefnast Super Versatile Jet, mun sænska sjúkraflugþjónustan tryggja almenningi öruggar og skjótar flugsamgöngur með sjúklinga um Svíþjóð sem teygir sig yfir 1.500 kílómetra frá norðri til suðurs en sjúkraþjónustan hefur höfuðstöðvar í Luleå í norðurhluta landsins.

Þoturnar verða afhentar til fyrirtækisins Aerolite AG sem annast sjúkraflugið fyrir sænsku sjúkraflugþjónustuna og koma þær í nýjum búningi sem skarta sænsku fánalitunum.

Pilatus PC-24 er mjög hraðfleyg þota sem getur lent og tekið á loft á stuttum flugbrautum sem hentar vel þegar verið er að sækja sjúklinga á afskekktum svæðum í Svíþjóð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga