flugfréttir
Fleiri flugmenn reknir vegna vafasamra flugskírteina
Flugvélar frá PIA (Pakistan International Airlines)
Pakistanska flugfélagið PIA (Pakistan International Airlines) hefur sagt upp fimm flugmönnum til viðbótar þar sem þeir voru með „vafasöm“ flugmannsskírteni sem ekki voru fullgild samkvæmt reglugerðum.
Alls hafa 63 flugmenn verið reknir frá flugfélaginu PIA í júlí en meðal þeirra
voru sumir með fölsuð skírteini á meðan nokkrir höfðu svindlað á prófum
til atvinnuflugs, brotið reglugerðir er varðar skírteini eða ekki verið með
skírteini í gildi.
Þá voru tveir starfsmenn reknir vegna fjársvika, einn á þeim forsendum
að ekki þótti hagkvæmt að hafa hann í starfi lengur og þá voru 27 starfsmönnum
sagt upp þar sem þeir höfðu verið frá vinnu og ekki látið sjá sig í langan tíma.
Fyrr í júlímánuði hafði 49 starfsmönnum verið sagt upp frá flugfélaginu pakistanska
þar sem þeir höfðu falsað upplýsingar um menntun sína og einnig vegna
agavandamála.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.