flugfréttir

Farþegum fjölgar hraðar hjá easyJet en félagið bjóst við

- Auka sætaframboð um 10 prósent með fleiri ferðum og aukinni tíðni

4. ágúst 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:18

Flugvélar easyJet á Gatwick-flugvellinum í London

Breska lágfargjaldafélagið easyJet segir að farþegar séu farnir að koma aftur og bóka flug í meira mæli en félagið bjóst við fyrr í sumar og er fjöldi bókana á farmiðum á seinni hluta sumarsins 10% meiri en spár gerðu ráð fyrir.

EasyJet bjóst við að fljúga að minnsta kosti 30% af venjulegu sætaframboði á síðustu sumarmánuðunum og fram á haust en nú sér félagið fram á að geta bætt við flugferðum og aukið sætaframboðið upp í 40 prósent.

Johan Lundgren, framkvæmdarstjóri easyJet, segir að nú sé félagið að sjá árangurinn eftir fyrsta heila mánuðinn frá því félagið byrjaði að fljúga á ný og mældist sætanýtingin um borð í flugvélum easyJet 84% í júlí.

Þrátt fyrir COVID-19 heimsfaraldurinn þá skilaði easyJet inn hagnaði eftir síðasta ársfjórðung með hagnað upp á 1.2 milljarða króna en á sama tíma í fyrra var hagnaður easyJet alls 314 milljarðar.

EasyJet hefur náð að safna saman hlutafé upp á 74 milljarða króna frá því í júní og ætlar félagið að selja fleiri þotur og leigja þær svo aftur til baka síðar til að auka rekstrarfé félagsins enn frekar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga