flugfréttir
Lufthansa Group mun taka yfir 60 flugvélar úr flotanum
- Yfir 270 milljarða króna tap á öðrum ársfjórðungi
Kyrrsettar flugvélar í flota Lufthansa
Lufthansa Group hefur tilkynnt afkomu sína eftir annan ársfjórðung þessa ársins og kemur fram að taprekstur félagsins nam 2 milljörðum Bandaríkjadala sem samsvarar 271 milljarði króna.
Þetta er eitt mesta tap í sögu Lufthansa Group sem hefur tilkynnt að fyrirtækið muni bregðast við með niðurskurði með uppsögnum starfsfólks auk þess sem
flugvélum í flota félagsins verður fækkað.
Lufthansa Group segir að áhrifin vegna kórónuveirufaraldursins séu mun verri en félagið
gerði ráð fyrir og sér fyrirtækið ekki fram á fullan bata fyrr en í fyrsta lagi árið 2024.
Fyrirtækið segir að ekki sé lengur hægt að komast hjá uppsögnum en nú þegar eru yfir 8.000
færri starfsmenn sem starfa hjá Lufthansa Group samanborið við sama tíma í fyrra og
þá kemur fram að því er spáð að fyrirtækið muni tapa yfir 400 milljörðum króna á þessu ári.
Lufthansa ætlar að taka 63 flugvélar endanlega úr umferð og þar á meðal sex
risaþotur af gerðinni Airbus A380, fimm Boeing 747þotur, ellefu Airbus A320 þotur
auk tveggja fraktflugvéla af gerðinni McDonnell Douglas MD-11.
Þá verða þrjár Boeing 767 breiðþotur og 13 Bombardier Q400 vélar teknar úr umferð
úr flota Austrian Airlines. Úr flugflota Brussels Airlines verða tvær Airbus A330 breiðþotur og
átta A319 þotur fjarlægðar og fimmtán Bombardier Q400 verða teknar úr flota Eurowings.
Lufthansa Group hefur sett á sölu eignir að andvirði 52 milljarða króna en þar á meðal
eru flugvélar úr flota félagsins og má þar nefna fimm Boeing 747 júmbóþotur, þrjár
McDonnell Douglas MD-11 þotur, þrjár Boeing 767 breiðþotur, tólf Airbus A320 þotur og
14 Bombardier Q400 þotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.