flugfréttir
Starfsmenn á Heathrow boða til verkfalls
- Mótmæla viðamiklum launalækkunum og saka yfirmenn um græðgi
Frá Heathrow-flugvellinum í London
Starfsmenn á Heathrow-flugvellinum í London hafa boðað til verkfallsaðgerða og hóta þeir að leggja niður störf sín til þess að mótmæla „óheiðarlegum launalækkunum“ og skerðingu á kjörum og fríðindum.
Starfsmenn Heathrow saka stjórn flugvallarins um að ganga of langt í niðurskurði og telja að fyrirhugaðar
niðurskurðaraðgerðir flokkist frekar sem græðgi en ekki hagræðing.
Stéttarfélagið Unite segir að Heathrow Airport ætli að reka fjölda starfsmanna og endurráða einhverja sem verktaka á mun lægri launum
sem mun neyða starfsfólk til þess lúta undir allt öðrum skilmálum.
Einhverjir starfsmenn gætu við það farið á mis
við laun upp á 1.4 milljónir króna á ári og segir stéttarfélagið að fjöldi starfsmanna munu fara á það lág laun að þeir munu eiga erfitt að ná endum saman.
Formaður Unite sakar forsvarsmenn flugvallarins um að nýta sér ástandið vegna COVID-19 heimsfaraldursins
sem afsökun fyrir mjög róttækar aðgerðir til þess að ná fram hagnaði.
„Þetta er bara hrein græðgi, en ekki spurning um þörf“, segir
Wayne King, yfirmaður hjá stéttarfélaginu Unite, sem segir að farið hafi verið fram á að slíkar aðgerðir séu aðeins
tímabundnar en Heathrow-flugvöllur hefur hafnað því tilboði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.