flugfréttir
Flugmaður veiktist skyndilega í aðflugi í Zurich
Airbus A321 þota frá Swiss International Air Lines í lendingu á flugvellinum í Zurich í Sviss
Flugmaður veiktist skyndilega um borð í farþegaþotu frá svissneska flugfélaginu Swiss International Air Lines um helgina.
Þotan, sem er af gerðinni Airbus A321, var á lokastefnu í ILS blindaðflugi að flugbraut 28 á flugvellinum í Zurich sl. föstudag
eftir stutt flug frá Frankfurt í Þýskalandi.
Fram kemur að kona, sem var aðstoðarflugmaður í fluginu, hefði skyndilega orðið illt
og er það mögulega rakið til matareitrunar þótt það hafi ekki fengist staðfest.
Flugstjórinn, sem var við stjórnvölinn er vélin var í aðfluginu, lýsti yfir neyðarástandi og
tilkynnti að flugmaður um borð væri veikur, sennilega eftir eitthvað sem hann hafði borða.
Flugvélin hélt aðfluginu áfram og lenti þotan skömmu síðar og var björgunarlið í viðbragðsstöðu og fylgdi vélinni eftir. Fram kemur að flugmaðurinn hafi náð sér fljótt skömmu síðar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.