flugfréttir
IATA gefur út svartsýnni spá fyrir flugið í Evrópu
- Vilja samhæfingu á opnun landamæra og breytingu á sóttvarnarreglum
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) gerir ekki ráð fyrir að fjöldi flugfélaga eigi eftir að ná sér í Evrópu fyrr en árið 2024
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hefur gefið út nýja spá er varðar framtíðarhorfur á næstunni í fluginu í Evrópu og er sú spá svartsýnni en fyrri spár.
IATA segir að ekkert samræmi sé milli landa um opnun landamæra, afléttingu ferðatakmarkanna og reglugerða um sóttkví og sé það aðalástæða þess að bataferlið í farþegaflugi sé ekki að ná sér almennilega á strik í Evrópu eins og gert
var ráð fyrir við upphaf sumarsins.
IATA segir að langvarandi krísa í flugiðnaðinum gæti kostað það að allt að 7 milljónir
muni missa vinnuna í fluginu en til samanburðar var gert ráð fyrir því í fyrri spá sem gerð
var í júní að 6 milljónir starfa væru í húfi í flugiðnaðinum í Evrópu.
Þótt að flugumferð hefur verið að aukast innan Evrópu þá hefur fjöldi flugferða ekki enn
náð helmingnum af þeirri flugumferð sem átti sér stað á sama tíma í fyrra.
Samtökin gera ráð fyrir að 60% færri flugfarþegar eiga eftir að ferðast til og frá Evrópu
árið 2020 sem gafngildir 705 milljónum færri farþegum. IATA gerir ekki ráð fyrir
að Evrópa eigi eftir að sjá sömu farþegatölur líkt og var árið 2019 fyrr en í fyrsta lagi
árið 2024.
IATA hvetur enn og aftur stjórnvöld til þess að samræma opnun landamæra til að minnka
óvissuna og finna aðrar leiðir er kemur að reglugerðum um sóttkví meðal farþega.
Þá segir í yfirlýsingunni að ástandið í fluginu í Miðausturlöndum sé einnig ekki að batna á þeim hraða sem búist var við fyrir tveimur mánuðum síðan.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.