flugfréttir
Heathrow hættir kjaraviðræðum og grípur til aðgerða
Frá Heathrow-flugvellinum í London
Stjórn Heathrow-flugvallarins í London hefur hafið formlegar viðræður við verkalýðsfélög varðandi mögulegar uppsagnir starfsmanna sem flugvöllurinn segir að sé óhjákvæmilegur vegna áhrifa af kórónaveirufaraldrinum.
Flugvöllurinn ákvað þetta í kjölfar þess að samningaviðræður við starfsmannafélög hafa farið út um þúfur og er sennilegt að starfsmönnum verði boðinn sá kostur að segja upp gegn starfslokasamningi auk þess sem þeir starfsmenn sem vilja halda starfinu verður boðið það gegn því að samþykkja launalækkun.
Heathrow-flugvöllur hefur átt í viðræðum við starfsmenn sína í fjóra mánuði en án árangurs og segir flugvöllurinn að þar sem tiltölulega lítil batamerki séu framundan í flugiðnaðinum sé ekki hægt að halda kjaraviðræðum áfram og verði því að bregðast við með viðeigandi aðgerðum svo að rekstrarvandi flugvallarins versni ekki enn frekar.
Talsmaður Heathrow-flugvallarins segir að COVID-19 heimsfaraldurinn hafi nú þegar kostað flugvöllinn um einn milljarð sterlingspunda frá því í mars sem samsvarar yfir 185 milljörðum króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.