flugfréttir
Framlengja frjálsari kröfum um notkun á lendingarplássum
Frá LaGuardia-flugvellinum í New York
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla að framlengja léttari kröfum varðandi notkun á lendingar- og þjónustuplássum á átta flugvöllum í Bandaríkjunum til að gera flugfélögum áfram auðveldara fyrir að halda starfsemi sinni gangandi vegna kórónaveirufaraldursins.
Aðallega er um að ræða kröfur um lágmarksnotkun á plássunum og voru kvaðir um það látnar falla niður
í vor og átti að afturkalla þær í október en FAA hefur núna framlengt því fram í mars árið 2021.
Fram kemur að vegna COVID-19 sé eftirspurnin ekki lengur sú að réttlætanlegt sé að fara fram á að flugfélög
fljúgi visst mikið til flugvallana til að viðhalda notkun á plássunum.
Framlengingin nær til lendingarplássa og afnot af stæðum og hliðum á LaGuardia-flugvellinum og John F. Kennedy
flugvellinum í New York auk Ronald Reagan flugvallarins í Washington en þá er einnig verið að skoða að
gera slíkt hið sama við Newark-Liberty flugvöllinn í Newark, O´Hare-flugvöllinn í Chicago auk flugvallanna
í Los Angeles og í San Francisco.
Þá leggur FAA einnig til að þau pláss sem eru ekki í notkun verði afhent tímabundið til annarra flugfélaga
og hafa flugfélög á borð við American Airlines, Delta Air Lines, United Airlines og JetBlue Airways lýst
yfir stuðningi við þá tillögu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.