flugfréttir
Ryanair með 2 fyrir 1 tilboð
Tilboð Ryanair gildir til miðnættis í kvöld
Ryanair hefur í fyrsta skipti í sögu félagsins kynnt „2 fyrir 1“ tilboð þar sem farþegum er boðið upp á að bóka flug og fá aukaflugsæti frítt með í kaupunum.
Tilboðið, sem kallast „Buy One, Get One Free“, býðst sé pantað
flug á einhverjum af þeim 1.600 flugleiðum sem félagið flýgur í leiðarkerfinu og gildir það fyrir ferðatímabilið frá 25. september til 14. desember á þessu ári.
Tilboðið gildir þó aðeins til miðnættis í kvöld (24. september) og þarf ókeypis flugmiðinn að vera bókaður í sömu flugferð og það far sem greitt er fyrir.
Tilboðið nær til áfangastaða í löndum á borð við Þýskaland, Ítalíu, Spán, Frakkland,
Portúgal, Grikkland, Ungverjaland, Holland, Póllands auk fleiri landa.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.