flugfréttir

EASA gæti aflétt flugbanni 737 MAX í nóvember

25. september 2020

|

Frétt skrifuð kl. 22:10

Boeing 737 MAX þoturnar hafa í dag verið kyrrsettar í eitt og hálft ár eða frá því í mars árið 2019

Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) íhugar að gefa Boeing 737 MAX þotunum leyfi til að hefja flug að nýju í nóvember næstkomandi og með því aflétta flugbanni vélanna í evrópskri lofthelgi sem hefur varað í eitt og hálft ár.

Með því geta þau evrópsku flugfélög, sem hafa Boeing 737 MAX vélarnar í flota sínum, byrjað að fljúga þeim aftur í farþegaflugi með því skilyrði að þau hafi framkvæmt þær breytingar sem Boeing hefur farið fram á er varðar uppfærslu á hugbúnaði auk fleiri lagfæringa.

Boeing er á lokasprettinum með að fá endurútgefið flughæfnisvottun frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) og er talið að EASA eigi eftir að fylgja í kjölfarið.

Um væri að ræða afléttingu á tæknilegu lofthæfi sem þýðir að Boeing 737 MAX getur farið að fljúga aftur í Evrópu en eftir það á eftir að gefa flugrekendum leyfi til þess að fljúga vélunum aftur í áætlunarflugi með farþega um borð.

Nokkur hundruð Boeing 737 MAX þotur bíða þess að verða afhentar til flugfélaga víðsvegar um heiminn

EASA hefur lýst því yfir að 737 MAX þoturnar fái ekki að fljúga aftur með farþega fyrr en búið verður að ganga algjörlega úr skugga um að MAX-þoturnar eru öruggar til flugs.

Patrick Ky, yfirmaður EASA, segir að flugöryggisstofnunin sé að horfa til nóvember er kemur að afléttinu á flugbanninu en tekur fram að það gæti liðið einhver smá tími þangað til að fyrstu evrópsku flugfélögin geta byrjað að fljúga 737 MAX þotunum á ný en mögulega gæti það verið fyrir lok ársins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga