flugfréttir
IATA lækkar spá sína varðandi batahorfur í fluginu
IATA segir að tölurnar eftir ágústmánuði sýni fram á að bataferlið í farþegaflugi sé mjög hægfara
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) hefur dregið úr spá sinni varðandi batahorfur í fluginu um 3 prósent sem byggir á tölfræði um flugumferð í heiminum í ágúst.
Ágústmánaður hefur endurspeglað að flugumferð í heiminum hefur tekið mun hægar við sér en gert var ráð fyrir sem þykir benda til þess að það muni taka lengri tíma fyrir flugið að rétta
úr kútnum vegna COVID-19 faraldursins.
Fyrri spá IATA gerði ráð fyrir að flugumferð í heiminum fyrir 2020, þegar árið er á enda, yrði 63% minni samanborið við flugumferðina árið 2019 en núna er talið að sú tala fari niður í 66 prósenta
samdrátt milli ára.
Fjöldi kílómetra sem flugfélögin flugu á hvern farþega lækkaði um 75.3% í ágúst miðað við sama mánuð í fyrra sem var samt sem áður betri útkoma heldur en í júlí þar sem sú tala fór niður í 79.5 prósenta
samdrátt á milli ára.
IATA segir að aðalástæðan fyrir hægari bata í farþegaflugi séu endurupptekning á sóttvarnarreglum
í flestum löndum í heiminum sem kemur í veg fyrir að fólk hafi löngun til þess að bóka flug og er
séð fram á að eftirspurn eftir flugi verði áfram álíka dræm næstu mánuði alveg fram í desember.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.