flugfréttir
Brandenburg-flugvöllur komin með rekstrarleyfi
- Ekkert í vegi sem kemur fyrir opnun þann 31. október
Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín mun opna þann 31. október næstkomandi
Flugmálayfirvöld í Þýskalandi hafa gefið nýja Brandenburg-flugvellinum í Berlín leyfi til að hefja starfsemi sína auk þess sem flugvöllurinn hefur fengið vottun til rekstur flugvallar fyrir áætlunarflug.
Með því getur Brandenburg-flugvöllurinn formlega hafið starfsemi sína
en áætlað er að taka flugvöllinn í notkun 31. október næstkomandi og verða tvær flugvélar frá easyJet og Lufthansa þær fyrstu til að lenda á flugvellinum eftir opnun hans og hafa þær flugvélar sama komutíma.
„Það er sönn ánægja að tilkynna að við höfum fengið þessi tvö leyfi í hendurnar frá flugmálayfirvöldum. Okkur tókst að sýna fram á að öll aðstaða og tækjabúnaður uppfyllir kröfur og reglugerðir og er því ekkert sem stendur í vegi okkar til að opna flugvöllinn þann 31. október 2020“, segir Engelbert Lütke Daldrup, framkvæmdarstjóri flugvallarins.
Nýlega lauk tilraunum með flugvöllinn þar sem 9.000 sjálfboðaliðar tóku þátt í að „leika“ farþega og verður þeim prófunum haldið áfram fram til 15. október til þess að sjá fram á að allt gangi snuðrulaust fyrir sig þegar flugvöllurinn opnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.