flugfréttir
Í mál við SpiceJet vegna vangoldinna leigugjalda
- Skulda 3.7 milljarða króna í leigu af sex Boeing 737 þotum
Boeing 737-800 þota frá SpiceJet
Tvær írskar flugvélaleigur hafa höfðað mál gegn indverska lágfargjaldafélaginu SpiceJet vegna vangoldinna leigugjalda á þeim flugvélum sem félagið hefur haft á leigu frá fyrirtækjunum.
Það eru flugvélaleigurnar BOC Aviation og Wilmington Trust Services sem hafa farið í mál við SpiceJet og krefjast þau greiðslu upp á 3.7 milljarða króna þar sem félagið
hefur ekki greitt leigugjöld af sex Boeing þotum frá því í apríl árið 2019.
Málið varðar leigu á þremur Boeing 737 MAX þotum frá Wilmington Trust Services og
þremur Boeing 737-800 þotum frá BOC Aviation en SpiceJet greiðir 30 milljónir króna
í mánaðarleigu af 737-800 þotunum og 47 milljónir á mánuði fyrir Boeing 737 MAX
þoturnar.
Fram kemur að SpiceJet hafi hætt að greiða leigugjöld til Wilmington Trust Services
af Boeing 737 MAX þotunum á þeim forsendum að félagið er að bíða eftir að fá
greiddar bætur frá Boeing vegna kyrrsetningu vélanna.
Málið verður tekið fyrir í dómsal í London þann 19. október næstkomandi en SpiceJet hefur fengið þrettán Boeing 737 MAX 8 þotur afhentar og á félagið von á 192 til viðbótar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.