flugfréttir
Delta hættir með Boeing 777 í lok október
- Síðasta flugið verður flug frá New York til Los Angeles þann 31. október
Boeing 777-200 þota Delta Air Lines
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hefur tilkynnt að félagið muni fljúga síðustu flugferðirnar með Boeing 777 breiðþotunum þann 31. október næstkomandi.
Næstsíðasta áætlunarflug Delta með Boeing 777 verður flug frá Atlanta til Los Angeles
þann 30. október og síðasta flugið verður daginn eftir, 31. október, frá Kennedy-flugvellinum
í New York til Los Angeles.
Síðustu flugin fá flugnúmerin DL8787 og DL8807 en frá og með 1. nóvember
verður öllu áætlunarflugi Delta með Boeing 777 þotunum skipt út fyrir flug með nýju
Airbus A350 þotunum. Delta Air Lines tilkynnti um endalok Boeing 777 þotnanna í maí í vor.
„Boeing 777 þoturnar hafa verið áreiðanlegir vinnuhestur sem hafa verið lykillinn að góðum árangri hjá félaginu frá árinu
1999. Með vélunum opnuðust nýir markaðir vegna þeirra eiginleika sem vélarnar búa yfir sem
gerði félaginu kleift að hefja beint flug og það á mjög löngum flugleiðum“, segir Gil West, rekstarstjóri Delta.
Delta Air Lines hefur í dag fimmtán Boeing 777 þotur í flotanum en fimm þeirra eru af gerðinni Boeing 777-200ER og tíu af gerðinni Boeing 777-200LR sem koma með mjög miklu flugdrægi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.