flugfréttir
Ryanair dregur enn frekar úr umsvifum sínum í vetur
- Fljúga 40 prósent af vetraráætluninni í fyrra í stað 60 prósent
Boeing 737-800 þotur Ryanair
Ryanair hefur ákveðið að draga enn meira úr fyrirhuguðum umsvifum sínum í vetur en félagið hefur birt endurgerða flugáætlun fyrir veturinn.
Í yfirlýsingu sinni segir Ryanair að bókanir í október hafi verið frekar
dræmar og spáir félagið áframhaldandi fækkun á bókunum fram á veturinn.
Af þeim orsökum hafi félagið ákveðið að draga úr flugferðum í vetur
frá nóvember til mars á næsta ári sem nemur 40% af umsvifum félagsins
veturinn 2019-2020 en upphaflega áætlaði Ryanair að fljúga 60 prósent
af þeim fjölda flugferða sem félagið flaug seinasta vetur.
Þá gerir félagið ráð fyrir að loka nokkrum bækistöðum í vetur á borð
við Cork og Shannon á Írlandi og Toulouse í Frakklandi auk þess
sem tölvert verður skorið niður í starfseminni í Belgíu, Þýskalandi, Spáni,
Portúgal og í Vín í Austurríki.
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að með þessu
sé möguleiki á því að félagið nái að koma út á sléttu eða lágmarka
taprekstur félagsins með lágmarksútgjöldum.
Ryanair á von á því að heildarfjöldi farþega á árinu nemi 38 milljónum
en þess má geta að 146 milljónir farþega flugu með Ryanair árið 2019.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.