flugfréttir
Ríkisstjórn Alsír íhugar stofnun nýs flugfélags
ATR 72-200 flugvél frá Air Algerie á flugvellinum í Mallorca á Spáni
Ríkisstjórnin í Alsír ætlar sér að stofna nýtt flugfélag fyrir innanlandsflugi í landinu.
Í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu í Alsír þá er stefnt á að með nýju innanlandsflugfélagi verði hægt
að minnka þann þrýsting sem er á ríkisflugfélagið Air Algerie til að sinna því og mun það flugfélag þá
geta einbeitt sér betur að millilandaflugi.
Abdelmadjid Tebboune, forseti Alsírs, hefur ítrekað hvatt ríkisstjórnina til þess að finna leið til að bæta
flugsamgöngur í landinu sem er stærsta land Afríku er kemur að flatarmáli.
„Air Algerie getur ekki sinnt flugi til allra innanlandsflugvallanna. Með því að stofna nýtt fyrirtæki þá getum
við sinnt innanlandsflugi fyrir íbúa landsins með mun skilvirkari hætti“, segir í yfirlýsingu en fram kemur
að einkaaðilar verða fengnir til þess að sjá um rekstur félagsins.
Air Algerie flýgur í dag til 33 áfangastaða innanlands í Alsír og notar félagið ATR skrúfuflugvélar
meðal annars til innanlandsflugsins á mörgum flugleiðum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.