flugfréttir
Gera tilraun til þess að koma Flybe aftur í loftið
- Breskur fjárfestingarsjóður í viðræðum um kaup á eignum Flybe
DeHavilland Dash 8 Q400 flugvélar frá Flybe
Heimildir herma að fjársterkir aðilar og fjárfestingasjóður í Bretlandi ætli sér að gera tilraun til þess að endurvekja aftur starfsemi breska lágfargjaldarfélagsins Flybe og koma því aftur í loftið en félagið varð gjaldþrota þann 5. mars á þessu ári.
Það er einn af stærri hluthöfum í félaginu, fjárfestingarsjóðurinn Cyrus Capital, sem hefur hafið viðræður við slitastjórnina EY
sem tók að sér gjaldþrotaskipti fyrir Flybe og er Cyrus Capital að íhuga að kaupa aftur eignir Flybe þrátt fyrir
núverandi ástand í flugiðnaðinum.
Fram kemur að hugmyndin sé að stofna smærri útgáfu af Flybe á næsta ári en nákvæmari dagsetning fer þó
eftir hvenær eftirspurn eftir flugi kemur til baka sem veltur á ferðatakmörkunum.
Flybe var eitt af stærstu lágfargjaldafélögum Evrópu og ferðuðust um 9 milljónir farþega með félaginu á ári milli
80 flugvalla á Bretlandi og í Evrópu og hafði félagið 40% markaðshlutdeild í innanlandsflug á Bretlandseyjum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.