flugfréttir
Flugvöllur fylltist af kindum
- Þurftu að hleypa heillri kindahjörð frá borði á Boeing 747 fraktþotu
Skjáskot af myndbandi af kindunum þar sem þær valsa um flugvallarsvæðið á Khomeini-flugvellinum í Teheran í Íran
Hundruði kinda lögðu undir sig flugvöllinn í Teheran sl. laugardag er júmbó-fraktþota, sem var að ferja kindur frá Tyrklandi til Katar, þurfti að lenda vegna bilunar í hreyfli.
Þotan, sem er af gerðinni Boeing 747-200 og er frá flugfélaginu Iran Air, var í 31.000 fetum á leið frá borginni Adana í Tyrklandi til Doha í Katar þegar flugmennirnir ákváðu að slökkva á einum af fjórum hreyflum vélarinnar og lenda á Khomeini-flugvellinum í Teheran.
Þar sem flugvélin gat ekki haldið áfram för sinni þar sem ekki var hægt að nálgast varahluti í bráð og engin önnu flugvél
tiltæk til að taka við farminum þurfti að koma fraktinni frá borði en fraktin samastóð af lifandi búfénaði.
Kindurnar fengu að valsa um og bíta það litla gras sem var í boði á flugvallarsvæðinu á meðan íranskir flugvirkjar
gerðu við bilunina en viðgerðin tók 63 klukkustundir.
Flugvirkjarnir fjarlægðu hreyfilinn af vélinni og komu honum til Mehrabad-flugvallarins og komu honum aftur til Khomeini-flugvallarins tæpum þremur sólarhringum síðar og var fénu þá smalað aftur um borð í flugvélina sem gat haldið áfram
för sinni til Doha.
Ekki fylgir sögunni hvernig rekstur flugvallarins gekk fyrir sig á meðan kindurnar voru á flugvellinum eða hvort að einhver röskun hafi orðið á flugi.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.