flugfréttir
Ryanair vill panta A320neo ef verðið er hagstætt
- Færu í flota Lauda Europe en annars verður tilboði Boeing tekið
Airbus A320 þota í litum flugfélagsins Lauda
Ryanair íhugar að festa kaup á Airbus A320neo og Airbus A321neo þotum fyrir nýja maltneska dótturflugfélagið Lauda Europe en aðeins með þeim skilyrðum að Airbus bjóði félaginu vélarnar á mjög hagstæðum kjörum.
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segist fullviss um að Ryanair nái að gera samning við
Airbus en tekur fram að flugvélaframleiðandinn evrópski verði að ná að bjóða þeim þá betri kjör en Boeing.
Ef Airbus nær ekki að bjóða Ryanair eins góð kjör og Boeing þá segir O´Leary að þeir muni þá taka
því tilboði sem þeir geta fengið hjá Boeing og með því verður þá hægt að fjarlægja Airbus-þoturnar úr
flugflota Lauda og Boeing-væða allan flotann með sömu flugvélategund og Ryanair.
Lauda Europe hefur í dag 34 Airbus A320 þotur í flotanum sem koma úr flota Lauda sem áður hét
Laudamotion en félagið er eina dótturfélag Ryanair sem hefur ekki Boeing 737-800 þotur í flotanum.
Ryanair hefur í dag 603 þotur í flota sínum sem eru allar af gerðinni Boeing 737-800 fyrir utan eina
þotu sem er af gerðinni Boeing 737-700 og hefur hún verið notuðuð í sérstöku leiguflugi í viðskiptaerindum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.