flugfréttir

Síðasta A340 fer úr flota SAS

- Síðasta Airbus A340 breiðþotan ferjuð í eyðimörkina þann 1. desemeber

20. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:21

„Astrid Viking“ (OY-KBM) í aðflugi að flugvellinum í Kaupmannahöfn í Danmörku

Scandinavian Airlines (SAS) mun um næstu mánaðarmót, þann 1. desember, senda síðustu Airbus A340 breiðþotuna vestur um haf í flugvélakirkjugarðinn og lýkur þar með sögu fjögurra hreyfla þotna hjá SAS.

Airbus A340 breiðþoturnar hafa verið í flota SAS í 19 ár en fyrsta þotan var afhent til félagsins í júlí árið 2001 en félagið hafði átta A340-300 breiðþotur þegar mest var.

Það er „Astrid Viking“ (OY-KBM) sem verður síðasta A340 breiðþotan til að fara úr flota SAS en hún var í litum flugfélagabandalagsins Star Alliance og var hún afhent til SAS í febrúar árið 2002.

SAS fékk sína fyrstu Airbus A340 breiðþotu afhenta í júlí árið 2001

SAS losaði sig við næstseinustu Airbus A340-300 breiðþotuna þann 17. nóvember sl. sem var „Adalstein Viking“ (OY-KBA) sem var afhent til SAS í nóvember árið 2001 en henni var flogið frá Kaupmannahöfn til Tucson í Arizona í Bandaríkjunum og þaðan til Marana Pinal Airpark flugvélakirkjugarðsins.

Árið 2019 var SAS með fimmta stærsta Airbus A340 flugflota heims en aðeins Lufthansa, South African Airways, Ibera og íranska flugfélagið Mahan Air höfðu fleiri Airbus A340 breiðþotur í flota sínum.

SAS hefur skipt öllum Airbus A340 þotunum út fyrir nýju Airbus A350-900 þotunum og hefur félagið fengið fjórar slíkar þotur afhentar og verða fjórar til viðbótar afhentar frá Airbus til ársins 2022.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga