flugfréttir
Alaska Airlines pantar 13 Boeing 737 MAX þotur til viðbótar
Alaska Airlines á von á því að fá 45 Boeing 737 MAX 9 þotur afhentar á næstu árum
Alaska Airlines hefur gert samning um leigu á þrettán farþegaþotum af gerðinni Boeing 737 MAX 9.
Þoturnar verða teknar á leigu hjá flugvélaleigunni Air Lease Corporation og í staðinn ætlar flugfélagið að selja tíu
Airbus A320 þotur til flugvélaleigunnar en þær þotur fóru í flota Alaska Airlines þegar félagið tók yfir rekstur Virgin America.
Alaska Airlines á nú þegar inni pöntun hjá Boeing í 37 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 9 sem félagið pantaði árið 2018 en Alaska Airlines hefur yfir 160 Boeing 737 þotur í flota sínum sem margar eru komnar til ára sinna.
Þessi ákvörðun Alaska Airlines er talin eiga eftir að styrkja ímynd Boeing 737 MAX og er vísir að frekari viðskiptum með
Boeing 737 MAX þar sem félagið gæti mögulega átt eftir að panta fleiri MAX-þotur síðar.
Alaska Airlines á von á því að fá fyrstu Boeing 737 MAX þoturnar eftir um það bil ár eða á fjórða ársfjórðungi næsta árs og
munu afhendingar standa yfir fram til ársins 2022.
Boeing reynir nú að selja fleiri flugfélögum Boeing 737 MAX þoturnar eftir að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafa aflétt
flugbanni vélanna og hefur flugvélaframleiðandinn tilkynnt um að von sé á fleiri pöntunum í MAX þoturnar frá Soutwest Airlines og
Ryanair auk þess sem Delta Air Lines er sagður vera mögulegur kaupandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.