flugfréttir

Ætla að fljúga öllum risaþotunum árið 2022

- Forstjóri Emirates er bjartsýnn á endurkomu farþegaflugs vegna bóluefnisins

25. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:48

Airbus A380 flugfloti Emirates á flugvellinum í Dubai

Emirates sér fram á að allar Airbus A380 risaþoturnar í flotanum verði komnar aftur í notkun fyrir árið 2022.

Þetta segir Tim Clark, forstjóri Emirates, sem tekur fram að hann sé mjög bjartsýnn á horfurnar í fluginu eftir árið 2021.

„Mín skoðun er sú, og mín skoðun er alltaf mjög bjartsýn, að fyrir lok næsta rekstrarárs eða á fyrsta ársfjórðung ársins 2022, verði allar A380 risaþoturnar okkar komnar í loftið“, segir Clark.

Emirates hefur í dag 114 Airbus A380 risaþotur en aðeins 12 af þeim eru í notkun þessa stundina á meðan 102 eru í langtímageymslu. Þá á Emirates eftir að fá átta risaþotur afhentar sem eru síðustu risaþoturnar sem Airbus mun framleiða áður en framleiðslunni lýkur formlega árið 2021.

Clark segist leyfa sér að vera bjartsýnn vegna frétta af nokkrum bóluefnum sem eru við það að fara koma á markaðinn og telur hann að um leið og dreifing á bóluefninu hefst að þá mun eftirspurnin koma til baka með tímanum.

Þrátt fyrir að Emirates skilaði inn fyrsta taprekstri á fyrri árshelmingi í 30 ár þá jókst fraktflug á vegum Emirates Cargo um 106% miðað við árið 2019.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga