flugfréttir

Volga-Dnepr kyrrsetur allar Antonov An-124 þoturnar

26. nóvember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:05

Antonov An-124 flugvélin eftir að hún fór út af braut í nauðlendingu á flugvellinum í Novosibrisk í Rússlandi þann 13. nóvember sl.

Rússneska flugfélagið Volga-Dnepr hefur kyrrsett allar Antonov An-124 fraktflugvélarnar í kjölfar atviks sem átti sér stað þann 13. nóvember sl. er flugvél af þeirri gerð fór út af flugbraut í Rússlandi í nauðlendingu.

Antonov-þotan, sem bar skráninguna
RA-82042, fór í loftið frá flugvellinum í borginni Novosibrisk áleiðis til Vínarborgar í Austurríki með 84 tonn af bílavarahlutum um borð en þegar þotan var komin í 1.800 fet rofnaði allt samband við flugvélina.

Flugmennirnir ákváðu að snúa við og lagði reyk frá einum af fjórum hreyflunum og síðar fannst brak úr hreyflinum á akri auk þess sem hluti úr hreyflinum endaði í gegnum þak á vöruskemmu.

Í yfirlýsingu frá Volga-Dnepr kemur fram að flugstjórinn hafi ákveðið að snúa við til Novosibrisk vegna „tæknilgera vandamála“ sem komu upp eftir flugtak.

Rekstarstjóri Volga-Dnepr hefur sent rússneskum flugmálayfirvöldum tilkynningu þar sem fram kemur að félagið ætli sjálft að kyrrsetja Antonov An-124 þoturnar en flugfélagið hefur ekki fengið neina beiðni um slíkt frá flugmálayfirvöldum í Rússlandi.

Volga-Dnepr hefur 12 Antonov An-124 þotur í flota sínum sem hafa meðalaldur upp á 26 ár en félagið segist hafa nógu margar fraktþotur í flotanum til þess að sinna fraktflutningum áfram.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga