flugfréttir

Terminal 5 flugstöðinni á Brandenburg verður lokað

- Syðri flugbrautin verður einnig tekin úr notkun sem fyrst

2. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:01

Terminal 5 flugstöðvarbyggingin á Brandenburg-flugvellinum

Nýi Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín hefur staðfest að til standi að loka Terminal 5 flugstöðinni tímabundið og færa alla starfsemina yfir á Terminal 1 flugstöðina.

Brandenburg-flugvöllurinn, sem var formlega tekin í notkun fyrir einum mánuði síðan, eða þann 31. október síðastliðinn, hefur tvær flugstöðvarbyggingar, Terminal 1 auk Terminal 5 sem er tilheyrir Schönefeld-flugvellinum.

Til stóð að flugvöllurinn yrði starfræktur með tvær flugstöðvarbyggingar auk þess sem síðar verður ný bygging, Terminal 2, tekin í notkun en eins og staðan er í dag eru það fáir farþegar sem fara um Brandenburg-flugvöllinn vegna heimsfaraldursins að flugvöllurinn hefur enga þörf fyrir tvær flugstöðvar í augnablikinu.

Terminal 5 verður lokað í eitt ár og þá stendur einnig til að loka syðri flugbrautinni eins fljótt og mögulegt er um óákveðin tíma og mun flugvöllurinn því að eins nýta eina flugbraut í stað tveggja en syðri brautin var opnuð þann 4. nóvember, fjórum dögum eftir að Brandenburg-flugvöllurinn var tekinn í notkun.

Eftir að syðri flugbrautinni verður lokuð mun aðeins ein flugbraut þjóna allri Berlínarborg sem er eitthvað sem ekki hefur gerst síðan árið 1923 þegar Tempelhof-flugvöllurinn var tekin í notkun.

„Árið 2021 verður mjög erfitt ár fyrir Brandenburg-flugvöllinn og enginn flugvöllur í Þýskalandi mun ná að hafa fyrir rekstarkostnaði miðað við spár um farþegafjölda á næsta ári“, segir Engelbert Lutke Daldrup, framkvæmdarstjóri flugvallarins.

Ekki hefur verið ákveðið hvenær Terminal 5 flugstöðinni verður lokað en gert er ráð fyrir að það verði gert mjög fljótlega eftir áramót og munu þau flugfélög, sem fljúga í dag um Terminal 5, fá aðlögunartíma áður en þau færa sig yfir á Terminal 1.

Framkvæmdum við nýju flugstöðvarbygginguna, Terminal 2, er lokið og stóð til að taka hana í notkun árið 2021 en eins og staðan er núna er óvíst hvenær hún verður tekin í notkun þar sem óvissa ríkir um framhaldið vegna þróun heimsfaraldursins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga