flugfréttir

MC-21 flýgur fyrsta flugið með rússnesku PD-14 hreyflunum

15. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:27

MC-21-300 tilraunarþotan frá Irkut í fyrsta fluginu í morgun með PD-14 hreyflunum

Rússneska MC-21-300 farþegaþotan hefur flogið sitt fyrsta flug með rússnesku PD-14 hreyflunum sem framleiddir eru af hreyflaframleiðandanum Aviadvigatel.

Fyrsta flugið með hreyflunum átti sér stað í dag og fór þotan í loftið frá verksmiðjunum í borginni Irkutsk og stóð flugið yfir í eina klukkustund og 25 mínútur en jómfrúarflug MC-21-300 þotunnar átti sér stað í maí árið 2017 en þá var þotan með PW-1400G-JM hreyflum frá Pratt & Whitney.

„Flugið er afrakstur tveggja mikilvægra verkefna sem er í gangi í dag í rússneskum flugiðnaði sem eru
MC-21 þotan og PD-14 hreyfillinn. Það má þakka þeim vísindamönnum, verkfræðingum, framleiðendum og starfsmönnum, sem hafa unnið að smíði þotunnar, fyrir þessa nýju kynslóð sem litið hefur dagsins ljóss“, segir Sergey Chemezov, framkvæmdarstjóri rússneska fyrirtækisins Rostec, sem hefur þróað PD-14 hreyfilinn.

PD-14 hreyfillinn hefur verið í þróun og smíðum frá árinu 2012 og er hann byggður á PS-90 hreyflinum sem hefur verið notaður til að knýja áfram margar rússneskar flugvélar í gegnum árinu frá því á níunda áratug síðustu aldar.

Um helmingur af öllum þeim 630 eintökum sem smíðuð verða af MC-21 þotunni mun koma með PD-14 hreyflinum á meðan hinar þoturnar koma með PW-1400G-JM hreyflinum frá Pratt & Whitney.

Irkut MC-21 þotunni er ætlað að keppa við farþegaþotur á borð við Boeing 737 og Airbus A320 og er gert ráð fyrir að þotan komi á markað á næsta ári.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga