flugfréttir

Þriðja flugbrautin fær grænt ljós hjá hæstarétti í Bretlandi

16. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:11

Boeing 777 þota frá British Airways í flugtaki á Heathrow-flugvellinum í London

Hæstiréttur í Bretlandi hefur úrskurðað Heathrow-flugvelli í vil og gefið endanlegt leyfi fyrir framkvæmdum á þriðju flugbraut vallarins og þar með snúið við dómi frá afrýjunardómstóli í febrúar sem dæmdi fyrirhugaðar framkvæmdir ólögmætar þar sem þær væru ekki í takt við þann loftlagssamning sem bresk stjórnvöld höfðu undirritað.

Leyfi fyrir þriðju flugbrautinni var mótmælt og ákváðu nokkur umhverfissamtök og þar á meðal samtökin Plan B að fara með málið fyrir dómi á þeim forsendum að þriðja flugbrautin væri að stangast á við skuldbindingar bresku ríkisstjórnarinnar til umhverfismála.

„Þetta er rétta niðurstaðan fyrir landið og mun Bretlandi því tengjast enn betur við umheiminn. Þriðja flugbrautin á eftir að skapa þúsundir nýrra starfa í flugiðnaðinum. Eftirspurn eftir flugi mun ná sér aftur á strik eftir COVID-19“, segir talsmaður Heathrow-flugvallarins.

Áður en heimsfaraldurinn skall á þá var Heathrow-flugvöllurinn einn annasamasti flugvöllur heims sem var starfræktur með 99% nýtni. Mörg flugfélög hafa verið á biðlista eftir að fá afgreiðslupláss á Heathrow og hefur það verið eins og lottóvinningur þegar nýtt flugfélag fær úthlutað plássi á flugvellinum.

Þriðja flugbrautin verður staðsett norður af flugvellinum, norður af 09L/27R brautinni, og með þeirri braut mun stærsti flugvöllur Evrópu koma til með að hafa þrjár flugbrautir líkt og allir aðrir flugvellir sem eru í 2 til 8. sæti á lista yfir stærstu flugvelli Evrópu.

Þriðja flugbrautin hefur verið sl. ár mikið hitamál meðal breskra stjórnmálamanna en Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur lengi verið andvígur þriðju flugbrautinni og sagði Johnson, er hann var borgarstjóri Lundúna, að hann myndi persónulega leggjast á jörðina fyrir framan jarðýturnar til að koma í veg fyrir framkvæmdirnar.

Langt verður þó í það að framkvæmdirnar hefjist þar sem enn á eftir að undirbúa framkvæmdirnar en fyrstu skrefin verða að kynna þriðju flugbrautina fyrir samfélögum og íbúum í nærliggjandi hverfum. Áður hefur komið fram að rýma þurfi mörg svæði og rífa niður fjölda húsa til að búa til pláss fyrir þriðju flugbrautina.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga