flugfréttir
Framleiðsla á Boeing 787 í Everett mun taka enda í febrúar
- Hraða flutningi á framleiðslunni til Suður-Karólínu um fjóra mánuði
Dreamliner-þotur fyrir framan verksmiðjur Boeing í Everett
Boeing hefur ákveðið að hætta framleiðslu á Dreamliner-þotunum í Everett fyrr en áætlað var og hraða fyrir flutningi á allri starfsemi er varðar samsetningu á þotunum til verksmiðjanna í North Charleston í Suður-Karólínu.
Það var í október í haust sem að Boeing tilkynnti að framleiðsla á Boeing 787 myndi eingöngu fara
fram í verksmiðjunum í Suður-Karólínu þar sem ákveðið hefði verið að hætta að framleiða þoturnar í Everett.
Til stóð að Dreamliner-vélarnar yrðu framleiddar áfram í Everett fram í júlí á næsta ári en nú hefur
Boeing ákveðið að flýta fyrir ferlinu og mun síðasta Dreamliner-þotan fara úr verksmiðjunum í febrúar eftir
áramót.
Það var fréttamiðilinn The Seattle Times sem greindi fyrst frá þessu samkvæmt
upplýsingum sem komu fram í skilaboði sem Boeing sendi starfsmönnum sínum í verksmiðjunum
í Suður-Karólínu en einnig kemur fram að afkastagetan á framleiðslunni verður minnkuð
niður í fimm Dreamliner-þotur á mánuði.
Um 1.000 manns hafa starfað við verksmiðjuna í Everett þar sem Dreamliner-þoturnar
hafa verið framleiddar en fram kemur að þeir starfsmenn muni ekki missa vinnuna
þrátt fyrir að þeir verði ekki færðir yfir til Suður-Karólínu.
Dreamliner-þotan hefur verið framleidd í Everett í um 13 ár eða frá árinu 2007 en nýjar verksmiðjur voru teknar í notkun í North Charleston árið 2010 en þess má geta að stærsta útgáfan af Dreamliner-þotunni, Boeing 787-10, hefur eingöngu verið framleidd þar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.