flugfréttir

Þróa stefnu í flugsamgöngum fyrir Grænlendinga

- Kalaallit Airports gerir þriggja ára samning við ráðgjafarfyrirtækið ASM

28. desember 2020

|

Frétt skrifuð kl. 20:11

Flugvélar frá grænlenska flugfélaginu Air Greenland

Flugráðgjafarfyrirtækið ASM hefur verið fengið til þess að aðstoða við hönnun leiðarkerfis, áætlunargerð og stefnumótun í flugsamgöngum til og frá Grænlandi til næstu ára.

Í tilkynningu segir að grænlenska flugvallarfyrirtækið Kalaallit Airports A/S hafi gert þriggja ára samning við ASM um gerð áætlunar fyrir aukna samgöngumöguleika og þá er fyrirtækinu ætlað að setja fram hugmyndir um hvernig hægt væri að laða fleiri erlend flugfélög til Grænlands.

Grænland er eitt afskektasta land heims er kemur að flugsamgöngum og eru aðeins þrjú flugfélög sem fljúga millilandaflug til eyjunnar sem er sú stærsta í heimi en þau félög eru Air Greenland, Air Iceland Connect og Norlandair.

Kalaallit Airports International A/S var stofnað árið 2019 af grænlensku landsstjórninni og af dönsku ríkisstjórninni og hefur aðalverkefni fyrirtækisins sl. ár verið að efla flugsamgöngur á Grænlandi og sjá um stækkun og viðhald á grænlenskum flugvöllum.

Núverandi stækkunarframkvæmdir á tveimur flugvöllum á Grænlandi eiga eftir að opna nýja möguleika sem þýðir að fleiri flugfélög geta hafið áætlunarflug til eyjunnar og er meðal annars verið að skoða möguleika á að fá flugfélög frá Norður-Ameríku til að hefja flug til Grænlands, frá Evrópu og þá er einnig Asía í sigtinu.

Til að mynda verður flugbrautin á flugvellinum í Nuuk lengd úr 950 metrum upp í 2.200 metra og þá stendur til að lengja flugbrautina í Ilulissat úr 845 metrum einnig upp í 2.200 metra en með því geta þessir flugvellir tekið á móti breiðþotum á borð við Airbus A330.

Fyrirtækið ASM mun aðstoða Grænlendinga við stefnumótun í flugsamgöngum með það að leiðarljósi að fá fleiri flugfélög til þess að fljúga til Grænlands

„Við fögnum því að fá ASM til liðs við okkur en þeirra teymi hefur mikla reynslu er kemur að aðstoða flugvelli við að auka umsvif sín með aukinni flugumferð“, segir Jens Lauridsen, framkvæmdarstjóri Kalaallit Airports.

ASM hefur aðstoðað flugvelli, ríkisstjórnir og flugfélög við að þróa leiðarkerfi og stefnu í flugsamgöngum í yfir 25 ár og vinnur fyrirtækið náið með viðskiptavinum sínum í að greina hvernig er mögulegt að laða til sín fleiri flugfélög, semja um áætlunarflug og undirbúning á aukinni flugumferð og sjá til þess að flugleiðir innan leiðarkerfis verði sjálfbærar.

„Grænland býr yfir mikilli sérstöðu þar sem tækifærin eru mörg. Sú uppbygging sem á sér stað á innviðum í dag mun ekki bara tryggja aukna flugumferð heldur einnig aðstoða við að styrkja efnahag landsins eftir heimsfaraldurinn“, segir David Stroud, markaðsstjóri ASM.

Frá árinu 2016 til ársins 2018 varð 10.8 prósenta aukning á gistinóttum á Grænlandi með tilkomu fjölgun ferðamanna og þá fjölgaði millilandafarþegum um 3.3% prósent.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga