flugfréttir
Brandenburg-flugvöllurinn tapar yfir 150 milljónum á dag
Brandenburg-flugvöllurinn í Berlín opnaði í lok október í fyrra
Rekstaraðilar Brandenburg-flugvallarins í Berlín tapa um einni milljón evra á dag á rekstri flugvallarins sem samsvarar því að taprekstur flugvallarins nemur 156 milljónum króna á hverjum degi.
Þessar tölur komu fram í viðtalsþættinum TV Brandenburg sem sýndur var í gærkvöldi og var þar tekið
fram að undir eðlilegum kringumstæðum ættu um 100.000 farþegar að fara um nýja Brandenburg-flugvöllinn
á dag en daglegur farþegafjöldi þessa daganna er langt undir 10 þúsund farþegum.
Til þess að draga úr rekstarkostnaði flugvallarins þá verður Terminal 5 flugstöðinni lokað á næstunni og
gæti það gerst um næstu mánaðarmót en sú flugstöð tilheyrir Schönefeld-flugvellinum sem liggur við hliðina
á Branenburg-flugvellinum.
Þá sagði rekstarstjóri flugvallarins í viðtalsþættinum að tölur er kemur að fraktflugi séu mun lægri en gert
var ráð fyrir í fyrstu en séð var fram á mikla flugumferð meðal fraktflugfélaga vegna heimsfaraldursins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.