flugfréttir
Yfir 70 prósent færri farþegar um Heathrow árið 2020
Frá Heathrow-flugvellinum í London
Yfir 70 prósenta samdráttur varð á fjölda þeirra farþega sem fóru um Heathrow-flugvöllinn í London árið 2020 samanborið við árið 2019.
Þetta kemur fram í tölum um farþegafjölda sem Heathrow-flugvöllurinn birti í dag fyrir árið 2020 en farþegum
fækkaði um 73% í fyrra sem má rekja ferðatakmarkanna og samdráttar í eftirspurn eftir farþegaflugi vegna heimsfaraldursins.
Þá varð 28% samdráttur á frakt sem má rekja til þess að stór hluti af flugfrakt er flutt í fraktrými á farþegaþotum og minni
umferð af farþegaflugvélum þýðir minna framboð af rými fyrir frakt.
Þá dróst fjöldi flugfarþega saman um 83% í desembermánuði þar sem fjölmörg lönd settu á ferðabann til Bretlands eftir að nýtt
afbrigði af kórónaveirunni fór að breiðast út í landinu og voru fjölmargir farþegar sem afbókuðu flug til og frá Bretlandi.
Þess má geta að í október missti Heathrow-flugvöllurinn titil sinn sem stærsti flugvöllur Evrópu og er Charles de Gaulle flugvöllurinn
í París í dag annasamasti flugvöllurinn í álfunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.