flugfréttir
Panta síðustu júmbó-þoturnar áður en framleiðslu lýkur
- Atlas Air pantar fjórar Boeing 747-8F fraktþotur
Boeing 747-8F fraktþota frá Atlas Air
Boeing hefur náð samkomulagi við flugfélagið Atlas Air sem ætlar að panta fjórar júmbófraktþotur af gerðinni Boeing 747-8F en um er að ræða fjórar síðustu júmbó-þoturnar sem Boeing mun framleiða og lýkur þar með yfir hálfrar aldar framleiðslu júmbó-þotunnar.
Atlas Air hefur í dag í flotanum 53 júmbó-þotur og af þeim eru tíu af gerðinni Boeing 747-8F og eru sex þeirra
sem starfræktar fyrir vöruflutningarisann DHL.
Boeing hafði þegar áform um að hætta framleiðslu á Boeing 747-8 þotunni árið 2022
og hefur sú dagsetning ekki breyst en eftir það er framleiðsla á júmbó-þotunni á enda og hefur hún því
verið framleidd í 54 ár þegar að því kemur.
Í júní sl. sumar hafði Boeing framleitt 1.556 júmbó-þotur frá upphafi eða frá því sú fyrsta var smíðuð
árið 1968 sem var af gerðinni Boeing 747-100 og þá hafa þar af fimmtán júmbó-þotur verið framleiddar
af gerðinni Boeing 747-8.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.