flugfréttir

Titan Airways fær sína fyrstu Airbus A321P2F fraktþotu

19. janúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 19:49

Fyrsta Airbus A321P2F frakþotan í litum Titan Airways

Breska flugfélagið Titan Airways verður annað flugfélagið til þess að taka í notkun fraktþotu af gerðinni Airbus A321 sem hefur verið breytt úr farþegaflugvél til þess að flytja eingöngu vörur.

Titan Airways fékk í byrjun janúar fyrstu Airbus A321P2F fraktþotuna af þremur sem félagið hefur pantað en það er fyrirtækið Elbe Flugzeugwerke (EFW) sem sér um að breyta þotunum yfir í fraktþotur en fyrirtækið er í eigu Airbus og ST Engineering í Singapore.

Þotan, sem Titan Airways hefur fengið afhenta, var áður farþegaþotu í flota flugfélagsins Thomas Cook sem varð gjaldþrota í september árið 2019.

Það er flugvélaleigan BBAM Limited Partnership sem á þotuna og leigir hana til Titan Airways sem hefur nú þegar tvær Boeing 737-400SF fraktþotur í flotanum auk tíu farþegaþotna en flugfélagið stefnir á að vera eingöngu með þotur frá Airbus í flotanum innan tíðar.

Það var Qantas Freight, dótturfélag Qantas, sem fékk fyrstu Airbus A321P2F þotuna afhenta í ágúst í fyrra en sú þota er 22 ára gömul, smíðuð árið 1998, og var hún áður í flota Iraqi Airways og þýska flugfélagsins Blue Wings.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga