flugfréttir

Nauðlenti á hraðbraut í Texas

21. janúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:30

Cessna 150 flugvélin á hraðbrautinni í bænum Gainsville í Texas í Bandaríkjunum í gær

Lítil eins hreyfils flugvél neyddist til þess að lenda á hraðbraut í Texas í Bandaríkjunum í gær eftir að upp kom bilun í mótor.

Flugvélin, sem er af gerðinni Cessna 150, var á flugi í nágrenninu þegar upp komu gangtruflanir í mótornum og þurfi flugmaðurinn að lenda vélinni sem fyrst.

Ivan Martinez, flugmaður vélarinnar, tilkynnti í gærkvöldi um gangtruflanir í mótornum en með honum í vélinni var farþegi sem einnig er flugmaður, Sergio Guardado, að nafni.

Sá flugmaður hefur meiri reynslu en Martinez og tók hann við stjórninni og valdi hann þann stað sem hann taldi besta lendingarstaðinn til þess að nauðlenda sem var Interstate 35 hraðbrautin.

Flugvélin nauðlenti á þeirri hraðbraut í bænum Gainsville, skammt norður af Dallas, og tókst lendingin giftusamlega en stór flutningabíll náði þó ekki að forðast flugvélina og rakst trukkurinn utan í vinstri væng vélarinnar.

Engan sakaði um borð né á jörðu niðri. Flugvélin er 52 ára gömul, smíðuð árið 1969, og er hún skráð í bænum Yellville í Arkansas.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga