flugfréttir

Fyrsta A300 þotan með nýjum stjórntækjum afhent til UPS

13. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:54

Stjórnklefinn eftir endurbæturnar á fyrstu Airbus A330 breiðþotunni frá UPS sem hefur fengist undir breytingarnar

Airbus hefur lokið við uppsetningu á nýjum stjórntækjum fyrir Airbus A300-600 breiðþotuna og afhent þotuna til baka til fraktflugfélagsins UPS (United Parcel Service) en þetta er í fyrsta sinn sem Airbus kemur fyrir endurbættum stjórntækjum fyrir þessa flugvélategund sem kom fyrst á markað árið 1974.

Vöruflutningarisinn United Parcel Service (UPS) gerði samning við Honeywell og Airbus um uppfærslu á stjórntækjum, skjám og tölvubúnaði á 52 Airbus A300 þotum árið 2017.

Með þessu mun líftími flugvélanna lengjast um a.m.k. 18 ár en meðal annars verður nýjum flugtölvum (FMS) og nýjum RVR 4000 veðurratsjám komið fyrir í vélunum auk þess sem þær munu fá LCD skjái fyrir báða flugmenn, nýtt Integrated Standby Instrument kerfi, nýjan ACARS-búnað og þá verður skipt um viðhaldstölvukerfi og árekstrarvara.

Endurnýjunin á stjórntækjunum fór fram í verksmiðjum Airbus í Mobile í Alabama í Bandaríkjunum og var flugvélin afhent þann 3. febrúar til UPS. Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á eins viðamikla breytingu á stjórnklefa fyrir Airbus A330 og gáfu evrópskt flugmálayfirvöld (EASA) út vottun fyrir breytingunni þann 22. desember sl. og bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) þann 5. janúar sl.

Ed Walton hjá UPS segir að Airbus A300 breiðþoturnar, sem keyptar voru á sínum tíma frá Airbus, séu ennþá einn helsti vinnuhesturinn í flota félagsins og séu þær ennþá ungar með tilliti til fjölda flugferða og eigi þær því nóg eftir.

Stærsta byltingin fyrir Airbus A300 vélar UPS verður að fá nýja flugtölvu sem kemur með gagnagrunni sem heldur utan um flugupplýsingar og flugvelli um allan heim en þær munu koma með Future Air Navigation System (FANS).

Núverandi flugtölvur (FMS) í Airbus A300 vélum félagsins hafa ekki nægilega stórt minni og geyma þær því aðeins upplýsingar fyrir lítil svæði með fáum flugvöllum og þarf því að setja upp nýjan gagnagrunn í hvert skipti sem hver flugvél ætlar að fljúga til annarra svæða en hún hefur flogið fram að því.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga