flugfréttir
Frakthurð á Boeing 757 þotu opnaðist skömmu eftir flugtak
Boeing 757-200F fraktþotan eftir lendingu í gær á flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi
Fraktþota frá vöruflutningafélaginu DHL þurfti að snúa við í gær eftir að aðalfrakthurð vélarinnar opnaðist skömmu eftir flugtak.
Fraktþotan, sem er af gerðinni Boeing 757-200F, var nýfarin í loftið frá flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi og var þotan í flugtaksklifri þegar dyrnar opnuðust
upp á gátt.
Flugmennirnir hættu við frekara klifur í 5.300 fetum og snéru þotunni við sem lenti aftur í Leipzig nokkrum mínútum síðar á hinum enda brautarinnar
en þeim sem hún notaði í flugtakinu.
Fram kemur að brak hafi lostnað frá skrokknum við hurðina eftir að hún opnaðist og dreifðist það yfir svæði í nágrenni við kolavirkjun skammt
frá flugvellinum.
Eftir að flugvélin lenti aftur í Leipzig var hún kyrrstæð á flugbrautinni í um 40 mínútur þar til hún var dregin að flughlaðinu og hefur hún enn
ekki farið í loftið frá því atvikið gerðist í gær.
Rannsóknaraðilar voru sendir á vettvang og hefur rannsókn hafist á atvikinu en fram kemur að engan sakaði en einhverjar skemmdur urðu á flugvélinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.