flugfréttir

Boeing 777 þotur með PW4000 hreyflum kyrrsettar

22. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 08:08

Boeing 777 þota frá United Airlines í flugtaki

Yfir 120 farþegaþotur af gerðinni Boeing 777 hafa verið kyrrrsettar eftir að Boeing sendi frá sér tilmæli þess efnis í gærkvöldi í kjölfar atviks sem átti sér stað sl. laugardag er bilun kom upp í hreyfli á Boeing 777-200 þotu frá United Airlines skömmu eftir flugtak fá Denver.

Bilunin varð til þess að sprenging kom upp í hreyfli með þeim afleiðingum að öll klæðningin og hreyflahlífin rifnaði af og féll til jarðar og þurfti þotan að snúa við og nauðlenda í Denver.

Í kjölfarið sendu bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) frá sér neyðartilmæli seint í gærkvöldi þar sem farið var fram á að bandarísk flugfélög skuli umsvifalaust taka tilteknar Boeing 777 þotur þegar úr umferð tímabundið.

Í yfirlýsingu frá Boeing sem send var út í gær kemur fram að þau flugfélög, sem hafa Boeing 777 þotur í flota sínum sem koma með sömu tegund af hreyflum og farþegaþotan frá United Airlines, sé gert að gera hlé á notkun þeirra þar til skoðun hefur verið gerð á hreyflunum sem eru af gerðinni PW4000 og eru framleiddir eru af Pratt & Whitney.

United Airlines hefur í kjölfarið kyrrsett 24 af þeim Boeing 777 þotum sem félagið hefur í sinum flota og þá hafa flugmálayfirvöld í fleiri löndum fylgt í kjölfar og þar á meðal í Japan þar sem flugfélögum á borð við Japan Airlines og ANA (All Nippon Airways) hefur verið gert að hætta öllu flugi með þeim Boeing 777 þotum sem koma með PW4000 hreyflunum.

Boeing segir að af þeim 120 Boeing 777 þotum sem tilmælin ná til þá séu um 69 af þeim í notkun á meðan 59 séu í geymslu vegna heimsfaraldursins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga