flugfréttir

Greina töluverða aukningu í ráðningum í fluginu vestanhafs

- Óttast mikinn skort á fagfólki þegar flugið tekur við sér eftir faraldurinn

22. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 14:50

Ráðningarvefurinn JSfirm.com segir að byrjunin á árinu lofi góðu

Atvinnutækifærum í fluginu fer fjölgandi vestanhafs og hafa atvinnuauglýsingar aukist töluvert undanfarnar vikur að sögn fyrirtæksins JSfirm.com.

Fyrirtækið sérhæfir sig í atvinnumiðlun í flugiðnaðinum og kemur fram að síðastliðna þrjá mánuði hafi atvinnuauglýsingar aukist um 19 prósent og var metfjölgun í janúar sl. er fjöldi atvinnuauglýsinga var farinn að nálgast sambærilegan fjölda af þeim auglýsingum sem settar voru inn fyrir tíma faraldursins.

JSfirm.com segir að stöðug aukning hafi verið í virkni á vefnum meðal vinnuveitenda sem eru að leita af starfskrafti og jókst sú virkni í janúar um 48% samanborið við desembermánuð.

„Eftir skyndilega og óvænta niðursveiflu í ráðningum í flugiðnaðinum árið 2020 þá höfum við beðið í ofvæni eftir því að sjá hvað árið 2021 ber í skauti sér. Þessi byrjun lofa allaveganna mjög góðu“, segir Abbey Hutter hjá JSfirm.com.

„Það sem við óttumst mest er allur sá fjöldi fagfólks sem hefur misst vinnuna og hefur yfirgefið flugiðnaðinn að undanförnu sem gæti átt eftir að mynda stórt gat og enn meiri skort á hæfileikaríku fólki en var fyrir tíma COVID-19“, segir Abbey.

Abbey tekur fram að sum fyrirtæki séu þegar farin að huga að ráðningum til þess að tryggja að þau lendi ekki í því að þau verða undirmönnuð þegar iðnaðurinn fer að taka við sér aftur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga