flugfréttir
Ríkisstjórn Ítalíu ætlar að taka yfir stjórn Alitalia
- Sagt að Lufthansa Group muni koma með fé inn í rekstur félagsins
Airbus A319 þota frá Alitalia
Í þeim tilgangi að bjarga rekstri ítalska flugfélagsins Alitalia þá hefur Mario Draghi, forsætisráðherra Ítalíu, tilkynnt að ríkisstjórn landsins ætli að taka yfir stjórn flugfélagsins á næstunni.
Yfirtaka ítalska ríkisins verður hluti af björgunaráætlun sem felur í sér fjárhagsaðstoð
frá Lufthansa Group en í fréttum ítalska dagblaðsins La Repubblica kemur fram að
stjórn Alitalia sé að undirbúa sölu á eignum félagsins til ítalska ríkisins og til Lufthansa.
Fyrri aðgerðir sem fólu í sér tilraunir meðal skiptastjórnenda Alitalia til þess að
finna utanaðkomandi fjárfesta til að setja fé í flugfélagið ítalska hafa ekki gengið
upp og þá hefur ítalska ríkið haft takmarkaða þolinmæði fyrir áframhaldandi
tilraunum til þess að verja skattfé í rekstur félagsins.
Samkvæmt fréttum La Repubblica þá er ríkisstjórn Ítalíu að íhuga næstu aðgerðir
sem kemur í þremur þrepum en það fyrsta er að koma rekstri Alitalia undir stjórn
lágfargjaldafélagsins Alitalia CityLiner, því næst mun efnahagsráðuneyti landsins
taka yfir stjórn CityLiner og því næst myndi Lufthansa Group koma að borðinu
með nýtt lausafé sem yrði sett í rekstur félagsins.
Lán frá ítalska ríkinu til Alitalia hafa sætt töluverðri gagnrýni meðal Evrópusambandins
en fram kemur að til standi að endurgreiða lánin í gegnum rekstur CityLiner og með því
væri hægt að uppfylla kröfur stjórnar Evrópusambandsins í Brussel.
Alitalia hefur í dag 104 flugvélar í flota sínum og er flugfloti Alitalia CityLiner talin með
en alls starfa um 11.000 manns hjá flugfélaginu ítalska.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.