flugfréttir
Kynna ómannaða herþyrlu sem gengur fyrir rafmagni
Prótótýpan af T629 þyrlunni frá Turkish Aerospace Industries (TAI)
Tyrkneski flugvélaframleiðandinn Turkish Aerospace Industries (TAI) hefur kynnt prótótýpu af ómannaðri þyrlu sem mun ganga fyrir rafmagni.
Áætlað er að þyrlan, sem nefnist T629, fljúgi sitt fyrsta flug síðar á þessu ári en þyrlan verður ætluð fyrir leitar- og björgunarstörf og vettvangsleiðangra en einnig verður hún útfærð sem árásarþyrla til að verjast herskipum og kafbátum.
T629 þyrlan hefur verið í þróun hjá Turkish Aerospace Industries frá því árið 2017
og mun hún geta borið flugskeyti til hernaðaraðgerða en að öðru leiti hefur
flugvélaframleiðandinn ekki birt neinar ítarlegar upplýsingar varðandi
eiginleika hennar né rafmagnsbúnað hennar.
Turkish Aerospace Industries er eitt stærsta fyrirtæki í flugiðnaði í Tyrklandi
og hefur fyrirtækið verksmiðjuland í Ankara sem eru yfir 5 milljón fermetrar af stærð
með verksmiðjuhúsnæði sem telur 150.000 fermetra.
Fyrirtækið hefur bæði framleitt flugvélar, þyrlur, dróna, hernaðargögn, varahluti í flugvélar auk gervitungla.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.