flugfréttir

Rússar og Ungverjar í samstarf við þróun á eins hreyfils flugvél

- Stefna á að þróa endurbættari útgáfu af Ilyushin Il-103 flugvélinni

19. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 08:21

Samningurinn felur í sér að báðir aðilar beggja landanna munu vinna saman að því að þróa og framleiða endurbættari útgáfu af Ilyushin Il-103 flugvélinni

Rússar og Ungverjar hafa undirritað samning um samstarf er varðar framleiðslu á nýrri og endurbættari útgáfu af lítilli eins hreyfils flugvél sem framleidd hefur verið hingað til af Ilyushin í Rússlandi en til stendur að ný kynslóð af flugvélinni verði þróuð og smíðuð í Ungverjalandi.

Að samningnum koma Ilyushin Aviation, dótturfélag United Aircraft Corporation (UAC) fyrir hönd rússneska ríkisfyrirtækisins Rostec State Corporation og ungverska fyrirtækið Aviation Engineering Zrt og verður flugvélin framleidd í Ungverjalandi.

Samningurinn felur í sér að báðir aðilar beggja landanna munu vinna saman að því að þróa nýja útgáfu af Ilyushin Il-103 flugvélinni sem verður markaðssett til ýmissa nota en flugvélin verður framleidd í verksmiðjum Aviation Engineering í ungversku borginni Pecs.

Markmiðið er að endurbæta hönnun flugvélarinnar með tilliti til lofteðlisfræðilegra eiginleika, koma fyrir áreiðanlegri hreyfli í flugvélina og nýstárlegum stjórntækjum og leiðsögubúnaði.

Til stendur að hægt verð að bjóða upp á útgáfur af flugvélinni sem henta meðal annars til flugkennslu og þjálfunnar flugmanna, til einkanota, fyrir flug með farþega, til flutninga á vörum í litlu magni og þá verður flugvélin útbúin fyrir stuttar flugbrautir og til flugs til afskekktra svæða sem erfitt er að fljúga til með öðrum flugvélum.

Einnig verður flugvélin markaðsett sem eftirlitsflugvél fyrir sérhæfð verkefni auk þess sem fram kemur að hún eigi einnig eftir að nýtast í landbúnaði.

Ilyushin Il-103 kom á markaðinn árið 1998 en aðeins hafa verið framleidd 66 eintök af flugvélinni síðan þá

Til stendur að yfirfæra allar núverandi verkfræðiteikningar yfir á rafrænt form og þá mun núverandi lofthæfisvottun gangast undir viðamiklar breytingar.

Ilyushin kom fyrst með Il-103 flugvélina á markaðinn á tíunda áratug síðustu aldar þegar Sovíetríkin voru enn við lýð og var þetta fyrsta flugvélin til þess að fá vottun vestanhafs af bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) árið 1998.

Fyrsta Ilyushin Il-103 flugvélin flaug sitt fyrsta flug þann 17. maí árið 1994 en síðan þá hafa aðeins verið framleidd 66 eintök af flugvélinni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga