flugfréttir

Auka flugdrægið á A220-300

- Komu auga á svigrúm til þess að auka flugtaksþunga vélanna

23. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 18:55

Airbus A220-300 þotan sem upphaflega kom á markaðinn undir nafninu CS300 er hún var framleidd af Bombardier í Kanada

Airbus ætlar að auka flugdrægið á Airbus A220-300 þotunni (CSeries CS300) með því að bjóða upp á útgáfu af flugvélinni með auknum flugtaksþunga.

Antonio Da Costa, varaforstjóri yfir þeir farþegaþotudeild Airbus sem snýr að minni þotum, segir að starfsmenn Airbus hafi verið að fara yfir burðargetu Airbus A220 þotunnar þegar þeir komu auga á svigrúm fyrir aukinni þyngd vélanna sem mætti auka um eitt tonn sem verður notað til þess að auka eldsneytismagnið um borð.

Hámarksflugtaksþyngd A220 flugvélanna myndi því aukast úr 69.9 tonnum upp í 70.9 tonn og með viðbótareldsneyti gætu þoturnar því flogið 200 mílum (nm) lengri vegalengd sem nemur 370 kílómetrum.

Antonio segir að það ríki mikil ánægja eftir að þessi möguleiki kom í ljós en einungis verður hægt að auka flugdrægið á Airbus A220-300 þotunni sem er stærri útgáfan og helst flugtaksþungi minni vélanna (A220-100) því óbreyttur.

Breytingin stendur viðskiptavinum til boða um mitt þetta ár og geta flugfélög breytt pöntun sinni þessvegna á síðustu stundu yfir í langdrægari útgáfuna þrátt fyrir að stutt sé í afhendingu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga