flugfréttir
Delta aflýsti yfir 100 flugferðum vegna skorts á flugmönnum
- Sögðu upp of mörgum flugmönnum í fyrra vegna COVID-19
Delta Air Lines flaug yfir 3.990 flugferðir þann 2. apríl sem er met frá því að heimsfaraldurinn hófst
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines neyddist til þess að aflýsa yfir 100 flugferðum yfir páskana vegna skorts á flugmönnum.
Flestum flugferðunum var aflýst á Páskadag eftir að í ljós kom að flugfélagið hafði ekki nægilega marga flugmenn til þess
að fljúga þeim flugvélum sem gert var ráð fyrir að myndu fljúga til að sinna þeirri eftirspurn sem varð á bókunum á flugi
yfir sl. helgi.
Fram kemur að um 18.000 starfsmenn hjá Delta Air Lines þáðu starfslokasamning ásamt tilheyrandi
greiðslum í fyrra og sat félagið því uppi með skort á starfsfólki yfir páskana en þetta er í þriðja sinn sem félagið hefur þurft að aflýsa
flugi yfir stórhátíðir.
Í dag starfa um 12.500 flugmenn hjá Delta Air Lines sem samsvarar um 16.9 prósent af öllu starfsfólki félagsins en það virðist
ekki vera nóg en talsmaður flugfélagsins segir að félagið sé að vinna að vandamálum sem snúa að starfsmannamálum, bólusetningu
og einnig að þjálfun flugmanna sem hafa ekki flogið í langan tíma vegna COVID-19.
Delta Air Lines, auk fleiri bandarískra flugfélaga, hafa furðað sig á þeirri eftirspurn sem hefur verið að myndast eftir innanlandsflugi
en frá því í seinustu vikunni í febrúar hefur félagið flogið fleiri flugferðir en félagið flaug á sama tíma árið 2019.
Þessa daganna er Delta Air Lines að fljúga um 3.700 innanlandsflugferðir á dag í Bandaríkjunum en á sama tíma árið 2019
var félagið að fljúga um 3.400 flugferðir á dag í innanlandsflugi.
2. apríl sl. var einn annasamasti dagurinn hjá Delta Air Lines frá því að heimsfaraldurinn hófst en þá flaug félagið 3.991 flugferð
og hefur félagið komist að því að það sagði upp of mörgum flugmönnum þar sem félagið nær ekki að anna eftirspurninni sem hefur myndast að undanförnu.
Þrátt fyrir það hefur Delta Air Lines mjög margar flugvélar í langtímageymslu en aðalvandamálið snýst um að margir
flugmenn eru enn á launaskrá í tengslum við styrktarverkefni ríkisstjórnar Bandaríkjanna en hafa ekki flogið lengi eða
hafa ekk tegundaráritun og þjálfun á þær þotur sem eru í notkun þessa daganna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.