flugfréttir
Bresk flugfélög vonsvikin eftir fregnir gærdagsins
- Bretar eiga ekki að gera ráð fyrir því að geta ferðast mikið í sumar
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands
Brostnar vonir eru meðal Breta um að geta ferðast erlendis eftir að Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnt í gær stefnu stjórnvalda er varðar ferðatakmarkanir á næstunni og tilkynnti hann Bretum að þeir gætu ekki gert sér vonir um að ferðast mikið erlendis í sumar.
Þetta stangast á við vonir breskra flugfélaga og ferðaskrifstofa sem hafa biðlað til breskra stjórnvalda um að slaka
á reglugerðum um ferðatakmarkanir og sóttkví svo hægt sé að opna fyrir sölu á flugi og sólarlandaferðum í sumar.
Þrátt fyrir að bólusetning gegn COVID-19 standi yfir á fullum krafti í Bretlandi þá voru skilaboð Boris Johnson
í gær mjög skýr og sagði hann: „Ekki gera neinar áætlanir með að ferðast utan Bretlands í sumar“ - Í ræðu sinni sagði
hann að ástandið væri einfaldlega ekki orðið nægilega viðunandi í öðrum löndum Evrópu svo hægt væri að ferðast til annarra
landa.
Fréttir gærdagsins voru langt frá því að vera góð tíðindi fyrir bresk flugfélög þar sem þau hafa flest beðið eftir því að fá
fregnir af afléttingu ferðatakmarkanna en breska ríkisstjórnin ætlar á næstunni að taka upp litakóðunarkerfi til að skilgreina
lönd eftir fjölda smita.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.