flugfréttir
EASA gefur út vottun fyrir Boeing 737 MAX 200
Boeing 737 MAX þota sem smíðuð hefur verið fyrir Ryanair
Flugmálayfivöld í Evrópu (EASA) gáfu í morgun út flughæfnisvottun fyrir Boeing 737 MAX 200 þotunni sem er sérstök útgáfa af MAX þotunni sem Boeing hefur markaðssett sérstaklega fyrir lágfargjaldaflugfélög.
Með þessu mun írska lágfargjaldafélagið Ryanair geta hafið farþegaflug með 737 MAX 200 þotunni en Boeing 737 MAX 200 kemur með tveimur viðbótarútgöngum þar sem þotan tekur allt að 200 farþega í einu almennu farrými.
Það var í september árið 2014 sem að Ryanair og Boeing tilkynntu um nýja undirtegund af
737 MAX þotunni en félagið hafði upphaflega pantað 135 eintök af 737 MAX 200 en ákvað í desember að bæta við 75 þotum og á félagið því
núna von á 210 þotum af þessari gerð.
Ryanair vonast til þess að vera komið með átta þotur afhentar af þessari gerð í þessum mánuði og átta til viðbótar í maí en engar þotur verða síðan afhentar í júní.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.